- Auglýsing -
Igor Chiseliov, leikmaður Þórs á Akureyri, mun ekki spila áfram með liðinu á næsta tímabil. Samningur hans rennur út í sumar og verður ekki endurnýjaður.
Jason Orri Geirsson, meðstjórnandi í stjórn handknattleiksdeildar Þórs, skýrði frá þessu í samtali við Handkastið.
Chiseliov er 33 ára gömul vinstri skytta sem náði sér ekki á strik á með Þór. Gekk hann til liðs við félagið síðastliðið sumar.
Chiseliov skoraði 29 mörk í 21 leik fyrir Þór í Olísdeildinni. Þórsarar höfnuðu í níunda sæti deildarinnar og er tímabili Akureyringa því lokið.
- Auglýsing -


