Nítjándu umferð Olísdeildar karla í handknattleik verður framhaldið í kvöld með tveimur viðureignum. KA fær Aftureldingu í heimsókn þar sem KA-menn fá tækifæri til þess að hefna fyrir tapið í átta liða úrslitum Poweradebikarsins.
Afturelding vann keppnina á síðasta laugardag eftir spennandi úrslitaleik við Hauka sem einnig eiga leik í kvöld.
KA þarf einnig á stigum að halda til þess að fjarlægjast ÍR-inga sem sitja í 11. og næst neðsta sæti og hafa ekki misst auga á markmiði sínu að halda sæti í Olísdeildinni.
Haukar taka á móti Gróttu á Ásvöllum 19.30. Liðin eru í áttunda og níunda sæti. Haukar fjórum stigum á undan. Tapi Grótta leiknum má segja að von liðsins um að ná áttunda sæti deildarinnar verði lítil.
Olísdeild karla:
KA-heimilið: KA – Afturelding, kl. 19 – sýndur á KAtv – https://www.livey.events/ka-tv
Ásvellir: Haukar – Grótta, kl. 19.30 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan í Olísdeild karla og næstu leikir.