- Auglýsing -
Önnur umferð Ragnarsmótsins í handknattleik kvenna fer fram í kvöld í Sethöllinni á Selfossi. Mótið hófst á mánudaginn með leik Selfoss og ÍBV þar sem fyrrnefnda liðið vann örugglega, 33:27. Í kjölfarið tók við viðureign Fram og Stjörnunnar. Fram vann örugglega, 29:20, eftir að hafa nánast gert út um viðureignina í fyrri hálfleik.
UMSK-mót kvenna verður til lykta leitt í kvöld þegar Afturelding og Grótta mætast að Varmá klukkan 18. Stjarnan hefur þegar unnið mótið en sigurliðið í leiknum í kvöld tryggir sér annað sætið.
Leikir kvöldsins
Ragnarsmót kvenna:
Sethöllin: ÍBV – Fram, kl. 17.45.
Sethöllin: Selfoss – Stjarnan, kl. 19.45.
Frír aðgangur er að leikjunum auk þess sem þeim verður streymt á Selfosstv.
UMSK-mót kvenna:
Varmá: Afturelding – Grótta, kl. 18.
Staðan:
Stjarnan | 3 | 3 | 0 | 0 | 88 – 80 | 6 |
Grótta | 2 | 1 | 0 | 1 | 52 – 49 | 2 |
Afturelding | 2 | 1 | 0 | 1 | 55 – 58 | 2 |
HK | 3 | 0 | 0 | 3 | 80 – 88 | 0 |
- Auglýsing -