Eftir þriggja vikna hlé verður þráðurinn tekinn upp í Olísdeild kvenna þegar sjötta umferð fer fram með fjórum leikjum. Íslandsmeistarar Fram sækja KA/Þór heim í fyrsta leik dagsins klukkan 15. Eftir það rekur hver leikurinn annan eins og sjá má hér fyrir neðan.
Níunda umferð Olísdeildar karla hefst einnig í dag með viðureign í Vestmannaeyjum þegar liðsmenn Gróttu sækja ÍBV heim. Áfram verður leikið í deildinni á morgun og á mánudaginn.
Einnig verður framhaldið fimmtu umferð Grill 66-deildar kvenna.
Klukkan 13 á sá sögulegi viðburður stað að nýstofnað handknattleikslið Víðis leikur sinn fyrsta heimaleik á Íslandsmótinu í 2. deild karla þegar ungmennalið Fjölnis mætir til leiks íþróttahúsið í Garði.
Leikir dagsins
Olísdeild kvenna:
KA-heimilið: KA/Þór – Fram, kl. 15 – sýndur á KAtv.
Vestmannaeyjar: ÍBV – Selfoss, kl. 16 – sýndur á Stöð2sport.
Kórinn: HK – Valur, kl. 16 – sýndur á HKtv.
TM-höllin: Stjarnan – Haukar, kl. 18 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan í Olísdeild kvenna.
Olísdeild karla:
Vestmanneyar: ÍBV – Grótta, kl. 14 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan í Olísdeild karla.
Grill 66-deild kvenna:
Dalhús: Fjölnir/Fylkir – FH, kl. 16.
Staðan í Grill 66-deild kvenna.
2.deild karla:
Garður: Víðir – Fjölnir, kl. 13.
Staðan í 2. deild.
EM kvenna, milliriðill 1, Ljubljana:
Króatía – Danmörk, kl. 17 – sýndur á RÚV2.
Noregur – Svíþjóð, kl. 19.30 – sýndur á RÚV2.
EM kvenna22 – milliriðlakeppni leikjadagskrá.