Fjölbreytt dagskrá verður fyrir áhugafólk um handknattleik í dag. Stórleikur dagsins er viðureign Svíþjóðar og Íslands í 4. umferð undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í Karlskrona í Svíþjóð. Flautað verður til leiks klukkan 13.
Eftir 13 marka tap í fyrri viðureigninni á Ásvöllum á miðvikudaginn eru íslensku leikmennirnir staðráðnir í að gera betur í dag í uppseldri Brinova Arena-keppnishöllinni í Karlskrona. RÚV er með starfsfólk sitt ytra með liðinu og sýnir leikinn í beinni útsendingu sem hefst klukkan 13.
Meðan landsleikurinn stendur sem hæst ytra hefjast tveir leikir í Olísdeild karla í handknattleik hér heima. Með leikjunum tveimur lýkur 18. umferð deildarinnar sem hófst á fimmtudaginn.
Síðar í dag verða tveir leikir háðir í Grill 66-deild karla.
Leikir dagsins
Olísdeild karla:
Safamýri: Víkingur – Fram kl. 14 – handboltapassin.
Kaplakriki: FH – Stjarnan, kl. 14 – handboltapassinn.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Grill 66-deild karla:
Ásvellir: Haukar U – HK U, kl. 15 – handboltapassinn.
Ísafjörður: Hörður – KA U, kl. 16 – handboltapassinn.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
Undankeppni EM kvenna, 7. riðill, 4. umferð:
Karlskrona: Svíþjóð – Ísland, kl. 13 – RÚV.
Staðan í 7. riðli:
Svíþjóð | 3 | 3 | 0 | 0 | 113:61 | 6 |
Ísland | 3 | 2 | 0 | 1 | 84:74 | 4 |
Færeyjar | 3 | 1 | 0 | 2 | 77:81 | 2 |
Lúxemborg | 3 | 0 | 0 | 3 | 47:105 | 0 |
Síðustu leikir Íslands í riðilinum:
3. apríl: Lúxemborg – Ísland, kl. 16.45.
7. apríl: Ísland – Færeyjar, kl. 16.
Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í lokakeppnina sem hefst undir árslok. Einnig komast fjögur af átta liðum sem hafna í þriðja sæti riðlanna áfram í lokakeppnina.