Keppni í Olísdeild karla heldur áfram í kvöld með tveimur leikjum í 19. umferð. Einnig er leikið í Grill 66 deildum karla og kvenna, einn hjá körlunum og tveir hjá konunum.
Í Olísdeild karla fær Fram lið HK í heimsókn í Úlfarsárdal. Einu sæti munar á liðunum, Fram er í sjöunda sæti og HK í áttunda, en átta stig eru á milli þeirra.
Þá mætir botnlið ÍR toppliði Vals í Skógarseli. ÍR þarf lífsnauðsynlega á stigum að halda á meðan Valur freistar þess að styrkja stöðu sína á toppnum.
Í Grill 66 deild karla mætast ÍH og Fjölnir í Kaplakrika. ÍH er í 11. og næstneðsta sæti og Fjölnir siglir lygnan sjó í fimmta sæti.
Í Grill 66 deild kvenna eigast svo Víkingur Reykjavík og HK við í Virkinu í Safamýri og FH fær Aftureldingu í heimsókn í Kaplakrika.
Grótta og HK hafa borið af í deildinni á tímabilinu og koma svo Víkingur og FH í þriðja og fjórða sæti.
Leikir kvöldsins
Olísdeild karla:
Lambhagahöllin: Fram – HK, kl. 19.
Skógarsel: ÍR – Valur, kl. 19.30
Grill 66-deild karla:
Kaplakriki: ÍH – Fjölnir, kl. 19.
Grill 66-deild kvenna:
Virkið: Víkingur – HK, kl. 18.30
Kaplakriki: FH – Afturelding, kl. 20.
Allir leikir kvöldsins verða sendir út á Handboltapassanum.



