Ein viðureign fer fram í Olísdeild kvenna í kvöld þegar Stjarnan sækir Gróttu heim í Hertzhöllina á Seltjarnarnesi. Flautað verður til leiks klukkan 19. Leikjum fer fækkandi í deildinni og keppst er um hvert stig. Það fer hver að verða síðastur fyrir Gróttu að bjarga sér upp úr neðsta sæti deildarinnar og ná umspilssæti. Stjarnan á von um að halda sjötta sæti deildarinnar og ná þar með inn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Aðeins munar einu stigi á Stjörnunni og ÍBV í sjötta og sjöunda sæti, Stjörnunni í vil. ÍBV tekur á móti Selfossi á morgun.
Leikir kvöldsins
Olísdeild kvenna:
Hertzhöllin: Grótta – Stjarnan, kl. 19.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Grill 66-deild karla:
Vestmannaeyjar: HBH – HK2, kl.19.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.