- Auglýsing -
Einn leikur er á dagskrá í úrslitakeppni Olísdeildar karla í kvöld. Valur tekur á móti KA í þriðja leik liðanna í undanúrslitum í N1 höllinni á Hlíðarenda klukkan 19. Valur er 2:0 yfir í einvíginu og tryggir sér því sæti í úrslitaeinvíginu með sigri í kvöld.
KA þarf hins vegar á sigri að halda til þess að halda sér á lífi og knýja fram fjórða leik á heimavelli sínum á Akureyri.
Valur vann fyrsta leik 39:21 og svo annan leikinn í KA heimilinu 33:30 eftir mikla spennu allt þar til í blálokin. Í hinu einvíginu mætast Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar, þar sem staðan er 1:1.
Leikur kvöldsins:
Olísdeild karla, undanúrslit, þriðji leikur:
N1 höllin: Valur – KA kl. 19
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026
- Auglýsing -


