- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagur fer með Króata í úrslitaleikinn í Noregi

Dagur Sigurðsson verður fyrsti Íslendingurinn til þess að stýra liði í úrslitaleik heimsmeistaramóts í karlaflokki. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -

Dagur Sigurðsson er kominn með króatíska landsliðið í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í handknattleik eftir sigur á Evrópumeisturum Frakklands, 31:28, í fyrri undanúrslitaleik mótsins í Zagreb Arena í kvöld. Úrslitaleikurinn fer fram á sunnudaginn klukkan 17 í Unity Arena-keppnishöllinni í Bærum í Noregi. Andstæðingur Króata verður annað hvort Danmörk eða Portúgal.

Dagur verður fyrsti Íslendingurinn sem stýrir landsliði í úrslitaleik heimsmeistaramóts karla í handknattleik.

Eins og gegn Íslendingum á dögunum þá lögðu Króatar grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik. Þeir náðu mest 10 marka forskoti og voru sjö mörkum yfir í hálfleik, 18:11. Mikill kraftur var í sóknar- og varnarleik Króata. Fimm einn vörnin, sem reyndist íslenska liðinu óþægur ljár í þúfu, varð Frökkum fjötur um fót. Frakkar voru hreinlega yfirspilaðir, eins og sagt var á árum áður.

Kampakátir Króatar í Zagreb Arena í kvöld. Landsliðs þeirra leikur til úrslita á HM.

Minnstur var munurinn þrjú mörk

Frökkum tókst aldrei að minnka muninn nema niður í þrjú mörk í síðari hálfleik. Síðustu 10 mínúturnar voru afar spennandi þegar franska liðið lagði allt í sölurnar m.a. með því að leika 3/3 vörn mjög framarlega. Allt kom fyrir ekki. Þegar Mario Sipic skoraði 31. mark Króata 100 sekúndum fyrir leikslok og kom heimamönnum fjórum mörkum yfir virtist sigurinn vera í höfn. Sú reyndist vera raunin.

Kuzmanović öflugur

Miklu máli skipti einnig fyrir Króata að Dominik Kuzmanović var öflugur í markinu meðan markverðir Frakka voru daufir í dálkinn.


Marin Jelinić og Zvonimir Srna skoruðu sjö mörk hvor og voru markahæstir Króata. Ivan Martinović skoraði sex mörk.
Dika Mem var markahæstur Frakka með átta mörk. Ludovic Fabregas var næstur með fjögur mörk.

Annað kvöld mætast Danmörk og Portúgal í hinni viðureign undanúrslitanna í Unity Arena-keppnishöllinni í Bærum í Noregi. Leikurinn hefst klukkan 19.30.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -