- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dagur skoraði sigurmark á síðustu sekúndu – ÍBV, FH og KA vinna – Selfoss sótti stig í Garðabæ

- Auglýsing -

Dagur Arnarsson innsiglaði sigur ÍBV á Haukum, 29:28, í viðureign liðanna í Olísdeild karla í handknattleik á Ásvöllum í dag. Dagur skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins eftir að Haukar höfðu tapaði boltanum 10 sekúndum fyrir leikslok. Haukar misstu þar með af efsta sæti deildarinnar sem þeir tylltu sér í eftir sigurinn góða á Val á fimmtudagskvöld.


Eyjamenn voru með naumt forskot allan síðari hálfleik. Þegar nær dró leikslokum virtust Haukar ætla að stinga sér fram og vinna. Þeim tókst hins vegar illa upp í síðustu tveimur sóknum sínum og gáfu þar með ÍBV færi á að fara með bæði stigin úr Kuehne+Nagel-höllinni.

Ágúst Elí öflugur í fyrsta heimaleiknum

Ágúst Elí Björgvinsson fór á kostum í fyrsta heimaleik sínum með KA í kvöld þegar liðið vann Íslandsmeistara Fram á afar sannfærandi hátt, 32:27. Ágúst Elí varði 17 skot og reyndist e.t.v. vera meginmunurinn á liðunum þegar upp var staðið.
KA hefur þar með, eins og ÍBV og FH, unnið tvo fyrstu leikina eftir EM-hléið.

Garðar Ingi Sindrason skoraði 10 mörk fyrir FH í leiknum við Þór. Ljósmynd/J.L.Long

FH gerði góða ferð norður til Akureyrar og lagði Þór, 26:21. Ekki síst var varnarleikur FH í síðari hálfleik það sem skildi liðin í jafnri viðureign lengi vel í Íþróttahöllinni á Akureyri.

Selfoss sótti tvö stig í Garðabæ

Selfoss lyfti sér upp úr allra neðstu sætum deildarinnar með sigri á Stjörnunni í Hekluhöllinni í Garðabæ, 27:26. Á hinn bóginn heldur Stjarnan áfram að sogast niður í fallbaráttuna með falldrauginn yfirvofandi.

Stjarnan hefur aðeins hlotið þrjú stig í síðustu 11 leikjum síðan liðið lagði Selfoss í Sethöllinni í byrjun október.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

Haukar – ÍBV 28:29 (11:13).

Mörk Hauka: Skarphéðinn Ívar Einarsson 7, Össur Haraldsson 5/1, Freyr Aronsson 5, Birkir Snær Steinsson 4, Hergeir Grímsson 4/3, Arnór Róbertsson 1, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 1, Ólafur Ægir Ólafsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 9/2, Magnús Gunnar Karlsson 0.

Mörk ÍBV: Hákon Daði Styrmisson 7/1, Dagur Arnarsson 7/3, Sveinn José Rivera 6, Daníel Þór Ingason 3, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Andri Erlingsson 2, Elís Þór Aðalsteinsson 1, Ívar Bessi Viðarsson 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 19/1, 44,2% – Morgan Goði Garner 0.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Þór – FH 21:26 (12:13).

Mörk Þórs: Þórður Tandri Ágústsson 4, Brynjar Hólm Grétarsson 3, Hafþór Már Vignisson 3, Kári Kristján Kristjánsson 2, Kári Kristján Kristjánsson 2, Þormar Sigurðsson 2, Hákon Ingi Halldórsson 2, Aron Hólm Kristjánsson 1, Arnór Þorri Þorsteinsson 1, Arnór Þorri Þorsteinsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 15.

Mörk FH: Garðar Ingi Sindrason 10, Jakob Martin Ásgeirsson 4, Birgir Már Birgisson 3, Birkir Benediktsson 3, Ómar Darri Sigurgeirsson 3, Brynjar Narfi Arndal 1, Einar Örn Sindrason 1, Jón Bjarni Ólafsson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 7, Daníel Freyr Andrésson 5.

Stjarnan – Selfoss 26:27 (14:13).

Mörk Stjörnunnar: Daníel Karl Gunnarsson 6, Hans Jörgen Ólafsson 6, Róbert Orri Arason 3, Starri Friðriksson 3/1, Jóel Bernburg 3, Benedikt Marinó Herdísarson 2, Dagur Logi Sigurðsson 2, Loftur Ásmundsson 1.
Varin skot: Adam Thorstensen 14, 41,2% – Sigurður Dan Óskarsson 2, 50%.

Mörk Selfoss: Tryggvi Sigurberg Traustason 7/2, Hannes Höskuldsson 6/1, Sölvi Svavarsson 6, Anton Breki Hjaltason 4, Gunnar Kári Bragason 3, Guðjón Baldur Ómarsson 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 12, 31,6%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

KA – Fram 32:27 (16:15).

Mörk KA: Bjarni Ófeigur Valdimarsson 8, Morten Linder 5, Logi Gautason 5, Einar Birgir Stefánsson 4, Magnús Dagur Jónatansson 3, Jens Bragi Bergþórsson 3, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 1, Arnór Ísak Haddsson 1, Einar Rafn Eiðsson 1/1, Daði Jónsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 17/1, 39,5% – Bruno Bernat 1/1, 50%.

Mörk Fram: Dánjal Ragnarsson 8/3, Viktor Sigurðsson 5, Theodór Sigurðsson 3, Arnar Snær Magnússon 2, Max Emil Stenlund 2, Erlendur Guðmundsson 2, Kjartan Þór Júlíusson 2, Dagur Fannar Möller 1, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 1, Rúnar Kárason 1.
Varin skot: Arnór Máni Daðason 10, 29,4% – Garpur Druzin Gylfason 2, 22,2%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

Afturelding – Valur 27:35 (12:18).

Mörk Aftureldingar: Harri Halldórsson 7, Árni Bragi Eyjólfsson 5/1, Ævar Smári Gunnarsson 4, Kristján Ottó Hjálmsson 3, Oscar Sven Leithoff Lykke 2, Sveinur Ólafsson 2, Andri Freyr Friðriksson 1, Brynjar Búi Davíðsson 1, Ihor Kopyshynskyi 1, Leó Halldórsson 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 6, 19,4% – Sigurjón Bragi Atlason 0.

Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 13/8, Bjarni í Selvindi 5, Gunnar Róbertsson 4, Andri Finnsson 3, Þorgils Jón Svölu Baldursson 3, Allan Norðberg 2, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 2, Dagur Leó Fannarsson 2.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13/2, 32,5%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Valsmenn á toppinn á ný – Annað tap Aftureldingar

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -