Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handknattleik gengur til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Larvik í sumar. Larvik er um þessar mundir eitt af þremur sterkustu handknattleiksliðum Noregs í kvennaflokki, með 25 stig eftir 16 leiki í deildinni, þremur stigum á eftir Sola sem trónir á toppnum. Á fyrsta og fram eftir öðrum áratug þessarar aldar var Larvik með eitt sterkasta félagslið Noregs.
Síðustu fjögur ár hefur Dana Björg leikið með Volda í næstefstu deild og vakið verðskuldaða athygli fyrir leik sinn og baráttugleði á leikvellinum og þá ekki síður með íslenska landsliðinu. Undanfarin ár hefur Dana Björg verið fyrirliði Volda-liðsins.
Dana Björg hefur leikið með íslenska landsliðinu síðan í október 2024 og tekið þátt í tveimur síðustu stórmótum. Hún skoraði 17 mörk á HM í Þýskalandi í nóvember og desember. Landsleikir Dönu Bjargar eru 19 og mörkin með landsliðinu 44.
Hefð og saga
„Larvik er félag með gríðarlega sögu og hefð í handbolta. Þegar ég var yngri var handboltaskóli Larvik á sumrin það stærsta sem maður gat tekið þátt í. Að fá tækifæri til að semja við félag sem hefur slíka stöðu í handboltaheiminum í Noregi er mjög stórt og mjög gaman,“ er haft eftir Dönu Björgu Guðmundsdóttur í tilkynningu í kvöld.
Dana Gudmundsdottir klar for Larvik


