- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Daníel Bæring og Sigurjón Atli skrifa undir samninga

Sigurjón Bragi Atlason, Stefán Árnason aðstoðarþjálfari Aftureldingar og Daníel Bæring Grétarsson. Ljósmynd/Afturelding
- Auglýsing -

Daníel Bæring Grétarsson og Sigurjón Bragi Atlason hafa skrifað undir nýja samninga við handknattleiksdeild Aftureldingar. Báðir voru þeir veigamiklir leikmenn í 3. flokks liði Aftureldingar sem varð Íslandsmeistari á seinasta tímabili. Þeir hafa einnig verið að stimpla sig inn með meistaraflokksliði Mosfellinga í vetur fyrir utan að hafa átt sæti í 19 ára landsliðinu sem hafnaði í 3. sæti á Sparkassen Cup-mótinu í Þýskalandi í lok desember.


„Daníel Bæring er stór og stæðilegur línumaður sem hefur verið að koma inn í Olísdeildinni í vetur. Hann er öflugur varnarmaður sem tekur mikið til sín. Daníel er viljugur og á eftir að verða stærri og stærri hluti af Aftureldingarliðinu á næstu árum,“ segir í tilkynningu Aftureldingar.

„Sigurjón er markmaður sem hefur bætt sig gríðarlega seinustu ár enda mjög duglegur að æfa og verður gaman að sjá hann á næstu árum. Hann er klókur markmaður sem er góður að lesa andstæðingana og er einn allra besti markmaðurinn í sínum aldursflokki,“ segir ennfremur m.a. í tilkynningu handknattleiksdeildar Aftureldingar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -