- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Danijela Sara heldur áfram að verja mark HK

- Auglýsing -

Danijela Sara Bokan Björnsdóttir markvörður hefur framlengt samning sinn við HK til næstu tveggja ára.

Danijela Sara hefur vakið mikla athygli sem markvörður og þrátt fyrir ungan aldur staðið á milli stanganna í marki hjá meistaraflokki síðastliðin tvö tímabil. Einnig stóð hún sig afar vel með U17 landsliðinu á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar og á Evrópumóti 17 ára landsliða á síðasta sumri.

„Danijela Sara leggur hart að sér og kemur til með að ná langt. Það er því okkur mikil ánægja að hún skuli ákveða að framlengja samning sinn við HK. Danijela Sara mun halda áfram að efla þann öfluga hóp sem leikur með meistaraflokki kvenna hjá HK,“ segir í tilkynningu félagsins í dag.

HK tekur á móti Val 2 í Kórnum í klukkan 19.30 í kvöld í fyrsta leik Grill 66-deildar eftir nokkurt hlé.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -