- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Daninn er sagður vera valtur í sessi í París

- Auglýsing -

Danski handknattleiksþjálfarinn Stefan Madsen virðist vera valtur í sessi hjá franska meistaraliðinu PSG. RThandball gerir því skóna að Spánverjinn Roberto Parrondo taki við af Madsen í lok leiktíðar. Parrondo hefur þjálfað Melsungen í tæp fimm ár.


PSG hefur átt erfitt uppdráttar í Meistaradeild Evrópu á leiktíðinni og virðist standa allra bestu liðunum nokkuð að baki. Eins hafa yfirburðir PSG ekki verið jafn miklir í frönsku deildinni og undanfarin ár.

Madesen, sem gerði garðinn frægan sem þjálfari Aalborg Håndbold um árabil með Arnór Atlason sér til halds og trausts, hætti með Álaborgarliðið sumarið 2024 eftir að hafa leitt liðið í annað skiptið á fáeinum árum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Madesen þjálfaði egypska meistaraliðið Al Ahly 2024/2025 áður en hann kom til Parísar síðasta sumar. Honum til aðstoðar hjá PSG er Henrik Møllgaard, fyrrverandi landsliðsmaður og lærisveinn hjá Alaborg Håndbold.

Handboltalið PSG hefur árum saman verið eitt dýrasta handknattleikslið Evrópu. Árangurinn hefur engu að síður látið á sér standa í Meistaradeild Evrópu og m.a. er þrjú ár liðin síðan PSG komst í úrslitahelgi keppninnar. Aðeins einu sinni hefur PSG leikið til úrslita í Meistaradeildinni. Þá beið liðið lægri hlut fyrir Vardar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -