- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Danmörk Evrópumeistari í fyrsta sinn í 14 ár

- Auglýsing -

Danmörk tryggði sér í kvöld Evrópumeistaratitil karla á heimavelli með því að leggja Þýskaland, sem Alfreð Gíslason þjálfar, 34:27 í úrslitaleik í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld. Alfreð og Þjóðverjar gera sér því silfrið að góðu.

Er þetta í fyrsta sinn í 14 ár sem Danmörk fagnar Evrópumeistaratitlinum og í þriðja sinn í sögunni. Danmörk er nú handhafi allra stærstu titlanna enda ríkjandi Evrópumeistari, heimsmeistari og Ólympíumeistari.


Danska liðið er aðeins annað liðið í sögunni sem tekst að vera handhafi allra þriggja stóru titlanna á sama tíma. Frakkland hafði áður afrekað slíkt hið sama árið 2010, urðu þá Evrópumeistarar eftir að hafa orðið heimsmeistarar 2009 og Ólympíumeistarar 2008.

Í leiknum í kvöld var Danmörk með yfirhöndina stóran hluta leiksins. Eftir jafnræði til að byrja með komst Danmörk mest þremur mörkum yfir í fyrri hálfleik og var með tveggja marka forskot í hálfleik, 18:16.

Þýskaland hóf síðari hálfleikinn af krafti og jafnaði metin í 19:19 en Danmörk svaraði með þremur mörkum í röð. Eftir það héldu Danir tveggja til fjögurra marka forskoti lengst af og unnu að lokum sjö marka sigur eftir frábæran endasprett.


Simon Pytlick var markahæstur í leiknum með átta mörk fyrir Danmörk. Jóhan á Plógv Hansen bætti við sjö mörkum, flestum af vítalínunni, og Mathias Gidsel skoraði sömuleiðis sjö mörk. Kevin Møller varði átta skot í markinu og Emil Nielsen sjö.

Johannes Golla, Juri Knorr og Marko Grgic skoruðu fimm mörk hver fyrir Þýskaland. Andreas Wolff varði 14 skot í marki liðsins.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -