- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Darri þurfti undir hnífinn

- Auglýsing -

Darri Aronsson hefur ekkert getað leikið með Haukum síðan í lok október vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu með liðinu. Gekkst Darri undir skurðaðgerð á hné í janúar í þeirri von að fá bót meina sinna.

Handkastið greinir frá því að hann hafi meiðst á liðþófa á æfingu í aðdraganda Hafnarfjarðarslags gegn FH. Haukar hafi vonast til þess að hvíld frá æfingum og leikjum myndi nægja til þess að Darri næði fullum bata en það reyndist ekki raunin.


Í stuttu samtali við Handkastið sagði hann endurhæfinguna ganga vel og kvaðst vonast til þess að snúa aftur í lok mánaðarins þegar úrslitahelgi Powerade bikarsins fer fram.

Darri lék ekki handbolta í þrjú ár vegna endurtekinna meiðsla og bakslaga áður en hann sneri loks aftur á völlinn með Haukum í haust. Var Darri á mála hjá Ivry í Frakklandi í árin þrjú á undan en tókst ekki að leika einn einasta leik.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -