- Auglýsing -
Díana Guðjónsdóttir, annar aðalþjálfara kvennaliðs Hauka, lætur af störfum að loknu yfirstandandi tímabili. Þetta staðfesti hún í samtali við Handkastið um liðna helgi.
Stefán Arnarson hefur þjálfað kvennalið Hauka með Díönu frá sumrinu 2023 og mun halda áfram störfum að því er Handkastið greinir frá. Hefur hann skrifað undir nýjan samning á Ásvöllum.
Haukar urðu bikarmeistarar á síðasta tímabili undir stjórn Díönu og Stefáns og eru sem stendur í þriðja sæti Olísdeildarinnar þegar fjórar umferðir eru óleiknar.
Haukar munu freista þess að verja bikarmeistaratitil sinn í næstu viku þegar liðið mætir Fram í undanúrslitum Poweradebikarsins á heimavelli sínum, Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum.
- Auglýsing -




