-Auglýsing-

Donni og félagar halda fast í annað sætið

- Auglýsing -

Kristján Örn Kristjánsson og samherjar í Skanderborg AGF halda áfram fast í annað sæti dönsku úrvalsdeildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir óleiknar. Skanderborg gerði jafntefli við GOG, 28:28, í Svenborg í dag. Þar með er áfram eins stigs munur á liðunum í öðru og þriðja sæti. Aalborg Håndbold er fyrir löngu orðin deildarmeistari en annað sæti skiptir miklu máli vegna úrslitakeppninnar sem er fram undan í vor. Úrslitakeppnin er leikin í tveimur fjögurra liða riðlum og fá tvö efstu lið deildarkeppninnar tvö stig hvort í heimamund.


Donni er jafnt og þétt að sækja í sig veðrið eftir að hafa verið sleginn út af laginu fyrir áramót vegna kviðslits. Hann lék sinn þriðja leik í röð með Skanderborg AGF í dag og skoraði fjögur mörk. Emil Lærke var markahæstur með níu mörk.

Frederik Bjerre var markahæstur með níu mörk fyrir GOG. Óli Mittún var næstur með sjö mörk.

Elvar öflugur

Elvar Ásgeirsson lék við hvern sinn fingur með Ribe-Esbjerg í fjögurra marka sigri á Grindsted, 32:28, á útivelli. Elvar skoraði fimm mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Fékk Elvar, ásamt Rasmus Meyer Ejlersen, flest framlagsstig leikmanna liðsins.


Staðan í dönsku úrvalsdeildinni þegar tvær umferðir eru eftir:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -