„Mér líður ógeðslega vel. Þetta er draumur að rætast. Það var geggjuð stemning í höllinni og þetta var ógeðslega gaman,“ sagði Birkir Snær Steinsson, sem skoraði sex mörk fyrir Hauka er liðið varð bikarmeistari með 28:21 sigri á ÍR í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld.
Haukar keyrðu yfir ÍR strax í upphafi og fyrir utan smá kafla í síðari hálfleik tóku heimamenn fótinn vart af bensíngjöfinni.
„Já, það er svo mikilvægt. Við töluðum um það að mæta með hausinn skrúfaðan rétt á. Að mæta á fullu og hafa ákefðina mikla. Við gerðum það ótrúlega vel,“ sagði Birkir Snær við handbolta.is.
Gunni frábær að leikgreina
Haukar virtust alltaf eiga svör við öllum aðgerðum ÍR sóknarlega og varði Grétar Ari Guðjónsson svo hvert skotið á fætur öðru í markinu.
„Við erum búnir að spila tvisvar við þá í deildinni og undirbjuggum okkur mjög vel, horfðum á vídeó af þeim. Gunni [Gunnar Magnússon þjálfari] er náttúrlega frábær að leikgreina og við fylgdum leikplani. Þetta gekk allt rosalega vel,“ sagði hann.
Birkir Snær var ánægður með eigið framlag í dag en benti á liðsheildina og þau sterku lið sem Haukar þurftu að skáka til þess að standa uppi sem bikarmeistarar.
„Já, auðvitað er alltaf gaman að skora en liðið í heild sinni var frábært. Þetta hafa verið frábærir leikir í bikarnum, ekki bara þessi. Við tókum Valsarana í 16-liða úrslitum og FH í undanúrslitum. Við erum með geggjað lið og þetta var frábært.“




