Adam Thorstensen, markvörður Stjörnunnar, skrifaði í vikunni undir tveggja ára samning við þýska félagið VfL Lübeck-Schwartau, með möguleika á eins árs framlengingu. Adam, sem er 23 ára gamall, heldur til Þýskalands að yfirstandandi tímabili loknu og reynir þá fyrir sér í atvinummennsku í fyrsta sinn.
„Tilfinningin er mjög góð. Þetta er búið að vera í vinnslu síðan fyrir jól þannig að það var mjög góð tilfinning þegar þetta varð formlegt og allt heila málið komst yfir línuna núna um daginn,“ segir Adam í samtali handbolta.is.
Adam hefur samið við VfL Lübeck-Schwartau
Lübeck-Schwartau leikur í B-deildinni í Þýskalandi og siglir þar lygnan sjó í tíunda sæti, langt fyrir ofan fallsætin og töluvert frá toppbaráttunni einnig. Skipti Adams til félagsins áttu sér töluverðan aðdraganda.
Tók einhverja tvo mánuði
„Ég fór út á reynslu til þeirra fyrir jól og það gekk svona helvíti vel að þeir vildu gera samning. Síðan eru þetta búnar að vera viðræður fram og til baka. Þetta eru búnir að vera einhverjir tveir mánuðir sem þetta tók,“ útskýrir hann.
Adam fer ekki í grafgötur með það að hann hafi lengi stefnt að því að komast út í atvinnumennsku. „Já, þetta er náttúrlega draumurinn. Þetta er það sem maður hefur alltaf stefnt að og það er geggjað að það sé núna að raungerast.“
Áður en hann heldur út til Þýskalands í sumar er fyrir höndum mikil barátta með Stjörnunni um að halda sæti liðsins í Olísdeildinni. Stjarnan er í tíunda sæti með tíu stig, skammt fyrir ofan neðstu tvö liðin Þór Akureyri og ÍR, og hefur tapað átta deildarleikjum í röð eftir að hafa misst marga lykilmenn í alvarleg meiðsli.
Lendum í meiðslahríð
„Upplifun mín af tímabilinu hefur verið einhvern veginn í allar áttir. Við förum náttúrlega inn í þetta tímabil með mikla áherslu á að við værum að fara að gera góða hluti og ég hafði góða tilfinningu fyrir tímabilinu. Við förum þarna og keppum í undankeppni Evrópudeildarinnar og dettum þar út í vító.
Síðan vinnum við meistara meistaranna þannig að tilfinningin var góð komandi inn í tímabilið. En svo lendum við einhvern veginn í þessari meiðslahríð og við höfum þurft að svara því mótlæti sem er í gangi núna. Nú eftir bikarúrslitahelgina förum við að fá leikmenn til baka og þá er vonandi að við snúum þessu gengi við,“ segir Adam.
Adam kveðst bjartsýnn á að Stjarnan nái að bjarga því sem bjargað verður svo Adam geti yfirgefið liðið á sem bestum nótum.
„Já, maður verður að vera bjartsýnn. Við erum með hörkuhóp og það kemur líka maður í manns stað. Það er bara þannig. Það eru núna þrír leikir eftir og við ætlum að gefa okkur alla í þá. Svo sjáum við hvernig það fer,“ segir Adam Thorstensen í samtali við handbolta.is.



