- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Draumurinn varð að engu – Króatar lina ekki tak sitt

- Auglýsing -

Draumur íslenska landsliðsins um bronsverðlaun á Evrópumótinu í handknattleik karla varð að engu í dag þegar liðið tapaði fyrir Króatíu, 34:33, í Jyske Bank Boxen á Jótlandi. Enn og aftur voru Dagur Sigurðsson og liðsmenn hans öflugri þegar á hólminn var komið. Líkt og viðureign liðanna fyrir níu dögum í Malmö þá tókst Króötum að ná frumkvæðinu í viðureigninni allt þangað til í lokin að íslenska liðinu tókst að setja andstæðing sinn undir pressu. Að mörgu leyti var viðureignin í dag spegilmynd af síðasta leik.


Vonbrigðin voru skiljanlega mikil hjá leikmönnum og þjálfurum íslensk landsliðsins að tapa báðum leikjum úrslitahelgarinnar. Fjórða sætið er niðurstaðan, sami árangur og náðist fyrir 24 árum á EM í Svíþjóð. Aðeins einu sinni hefur íslenska landsliðið unnið til verðlauna á EM, fyrir 16 árum.


Króatar náðu frumkvæði í upphafi leiksins. Varnarleikurinn íslenski var ekki viðunandi og þrátt fyrir fjölda góðra marktækifæra í sókninni brást mönnum bogalistin. Útlitið var ekki bjart eftir 18 mínútur, 12:6, fyrir Króatíu. Eftir það lifnaði yfir leik íslenska liðsins um stund. Björgvin Páll Gústavsson kom með hvatningu inn í hópinn. Með góðum spretti tókst að minnka muninn í tvö mörk, 13:11 og 14:12. Nær komst íslenska liðið ekki og Krótar náðu að skora á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks og fara með þriggja marka forskot í hálfleik, 17:14.

Í síðasta leik Íslands og Króatíu var Zvonimir Srna allt í öllu og skaut íslenska liðið á kaf. Nú var hann meiddur en í staðinn héldu Tin Lucin engin bönd.

Svo virtist sem leikurinn væri jafn og þetta var að renna íslenska landsliðinu úr greipum eftir því sem á síðari hálfleik leið. Króatar voru komnir með sex marka forskot, 29:23, þegar níu og hálf mínúta var eftir. Í kjölfar leikhlés og breytinga á vörninni tókst að vinna upp forskot Króata en þó aldrei nægilega til þess að jafna metin. Viktor Gísli Hallgrímsson, sem var kominn í markið á ný, varði tvö vítaköst sem hjálpuðu verulega.


Mörk Íslands: Ómar Ingi Magnússon 12/10, Gísli Þorgeir Kristjánsson 6, Óðinn Þór Ríkharðsson 5, Bjarki Már Elísson 4, Haukur Þrastarson 2, Elliði Snær Viðarsson 2, Arnar Freyr Arnarsson 1, Janus Daði Smárason 1.
Varin skot: Viktor Gísli Hallgrímsson 6/2, 26,1% – Björgvin Páll Gústavsson 5, 23,8%.

Mörk Króatíu: Tin Lucin 9, Veron Nacinovic 6, David Mandic 4, Ivan Martinovoc 4, Mateo Maras 3, Mario Sostaric 3/3, Marin Jelinic 3, Filip Clavas 1, Luka Love Klaruica 1.
Varin skot: Matej Mandic 8, 22,2% – Dino Slavic 0.

Handbolti.is er í Boxen og fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -