Dregið verður í riðla lokakeppni heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik í Hertogenbosch (Den Bosch) í Hollandi klukkan 16 í dag. Nafn Íslands verður á meðal 32 þjóða sem dregið verður úr skálunum fjórum. Heimsmeistaramótið fer fram í Hollandi og Þýskalandi frá 26. nóvember til 14. desember og verður þetta annað heimsmeistaramótið í röð sem Ísland tekur þátt í.
Ísland er í þriðja styrkleikaflokki af fjórum:
1.flokkur: Frakkland, Noregur, Danmörk, Ungverjaland, Svíþjóð, Holland, Þýskaland, Svartfjallaland.
2.flokkur: Pólland, Brasilía, Serbía, Rúmenía, Sviss, Spánn, Austurríki, Angóla.
3.flokkur: Tékkland, Japan, Senegal, Ísland, Argentína, Færeyjar, Suður Kórea, Túnis.
4.flokkur: Egyptaland, Úrúgvæ, Kasakstan, Paragvæ, Íran, Kúba, Kína, Króatía.
Leikstaðir og leikdagar:
A-riðill: Rotterdam (27., 29. nóv., 1. des).
B-riðill: Hertogenbosch (27., 29. nóv., 1. des).
C-riðill: Stuttgart (26., 28. og 30. nóv).
D-riðill: Trier (26., 28. og 30. nóv).
E-riðill: Rotterdam (28., 30. nóv., 2. des).
F-riðill: Hertogenbosch (28., 30. nóv., 2. des).
G-riðill: Stuttgart (27., 29. nóv., 1. des).
H-riðill: Trier (27., 29. nóv., 1. des).
- Þrjú efstu liðin komast áfram í fjóra milliriðla sem leiknir verða í Dortmund og Rotterdam frá 2. til 8. desember.
- Neðsta lið hvers riðils tekur þátt í keppninni um forsetabikarinn, sæti 25 til 32. Leikirnir fara fram í Hertogenbosch (Den Bosch) 4. til 10. desember.
Hægt verður að fylgjast með útsendingu frá drættinum í streymi: