-Auglýsing-

Dujshebaev byrjaði á sigri gegn löndum sínum

- Auglýsing -

Spánverjinn Talant Dujshebaev hóf feril sinn sem þjálfari franska karlalandsliðsins með því að vinna landa sína í Spáni, 29:26, í vináttulandsleik í Le Mans í Frakklandi í kvöld.

Dujshebaev tók nýverið við stjórnartaumunum hjá franska liðinu í kjölfar þess að Guillaume Gille var látinn taka pokann sinn eftir að hafa náð slökum árangri á EM 2026 fyrr á árinu.


Dujshebaev mun samhliða þjálfun Frakklands halda áfram þjálfun pólska stórliðsins Industria Kielce.

Liðin mætast öðru sinni í vináttulandsleik á sunnudag, en sá leikur fer fram í Ciudad Real á Spáni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -