- Franski landsliðsmarkvörðurinn Cyril Dumoulin hefur skrifað undir nýjan samning við félag sitt, Nantes. Nýi samningurinn gildir fram á mitt árið 2022.
- Andre Gomes, einn af yngri kynslóð portúgalskra handknattleiksmanna sem vakið hafa mikla athygli síðustu ár þykir líklegur til að hlaupa í skarðið fyrir Nikola Bilyk hjá Þýskalandsmeisturum THW Kiel. Kieler Nachrichten telur sig hafa heimildir fyrir þessu. Bilyk sleitt krossband í lok ágúst og verður vart með á keppnistímabilinu. Gomes er 22 ára gamall en er þegar orðinn lykilmaður hjá Porto í heimalandi sínu.
- Hinn 21 árs gamli landsliðsmaður Rússa Sergei Kosorotov er nú orðinn liðsmaður Wisla Plock í Póllandi eftir að hafa leikið með Medvedi í heimalandi sínu um nokkurt skeið.
- Thomas Bauer landsliðsmarkvörður Austurríkis yfirgaf FC Porto í Portúgal í sumar og gekk til liðs við AEK í Aþenu. Hann skrifaði undir samning til eins árs.
- Tyrkneskur landsliðsmaður, Doruk Pehlivan, hefur verið lánaður frá Kielce í Póllandi til þýska liðsins GWD Minden. Grikkinn Savvas Savvas gekk einnig til liðs við Minden á dögunum.
- Auglýsing -