- Auglýsing -

Eftir sitja vonbrigði að hafa ekki náð inn í hóp sextán efstu

Breki Hrafn Árnason markvörður U21 árs landsliðsins hvetur félaga sína til dáða. Ljósmynd/EHF
- Auglýsing -


„Við vorum orðnir svolítið bensínlausir í dag og bara alls ekki nógu góðir. Því fór sem fór,“ sagði Einar Andri Einarsson annar þjálfara U21 árs landsliðsins í handknattleik karla þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans eftir þriggja marka tap íslenska landsliðsins fyrir Serbum í síðasta leiknum á heimsmeistaramótinu í Póllandi, 38:35. Átjánda sætið kom þar með í hlut íslenska landsliðsins.

„Serbar eru með öflugt lið. Þeir voru óheppnir að vera ekki á meðal þeirra sextán efstu á mótinu,“ sagði Einar Andri ennfremur en ásamt honum er Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari íslenska liðsins.

Eftir sitja vonbrigði

„Á heildina litið sitja eftir vonbrigði af okkar hálfu að hafa ekki náð inn í hóp sextán efstu liða mótsins eins og markmið okkar klárlega var þegar keppni hófst. Til þess eru svo sem ástæður sem ég hef áður farið yfir, jafntefli við Færeyinga í leik sem við áttum að vinna og síðan tapið fyrir Rúmeníu í fyrsta leik,“ sagði Einar Andri sem þrátt fyrir að vera vonsvikinn yfir niðurstöðunni er ánægður með leikmannahópinn. Allir leikmenn lögðu sig fram og gerðu sitt besta.

Þjálfara 21 árs landsliðsins, Einar Andri Einarsson og Halldór Jóhann Sigfússon, ráða ráðum sínum á EM 20 ára landsliða síðasta sumar. Ljósmynd/EHF

Vandfyllt skörð

„Það hefði verið skemmtilegra að fylgja eftir gríðarlega góðum árangri þessa hóps síðasta sumar á EM 20 ára landsliða þegar við náðum sjöunda sæti. Þrátt fyrir að skörð hafi verið hogginn í þann hóp sem var á EM í fyrra þá gerðum við okkur vonir um að ná lengra en raun varð á að þessu sinni,“ sagði Einar Andri.
Meðal leikmanna sem voru með á EM í fyrra en gátu ekki tekið þátt nú er Framararnir Kjartan Þór Júlíusson og Reynir Þór Stefánsson.

Ekki óeðlileg krafa

Einar Andri sagði sjálfsagt að gera þá kröfu til íslenska landsliðsins að það væri á meðal sextán efstu á heimsmeistaramóti. „Það er ekkert óeðlilegt enda fullkomlega í takti við þær væntingar sem leikmenn og starfsmenn ætluðu sér. Staðan er hinsvegar sú að framfarir eru víða miklar og þess vegna er ekkert orðið sjálfgefið að komast áfram upp úr riðlakeppninni í hóp sextán bestu. Þess utan eru riðlarnir misjafnlega samsettir.“

Flottur hópur

„Hópurinn sem tók þátt í mótinu er skipaður flottum handboltamönnum sem eiga eftir að ná lengra. Einhverjir þeirra eru komnir út í atvinnumennsku nú þegar. Vonandi bætast fleiri við á næstu árum um leið og við vonum að einhverjir skili sér inn í A-landsliðið á næstu árum,“ sagði Einar Andri Einarsson annar þjálfari U21 árs landsliðs karla í samtali við handbolta.is í dag.

Yngri landsliðs – fréttasíða.

HMU21-’25: Dagskrá og úrslit síðustu leikja mótsins

Forsetabikarinn til Serbíu – þriggja marka tap í lokaleiknum

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -