- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Ég er ekki með neinar skýringar á þessu“

- Auglýsing -

Meiðslavandræði karlaliðs Stjörnunnar á yfirstandandi tímabili hafa verið með nokkrum ólíkindum. Tandri Már Konráðsson sleit hásin í upphafi tímabils, Pétur Árni Hauksson sleit krossband í hné í janúar, Gauti Gunnarsson sneri sig nýverið á ökkla og stuttu áður hafði Ísak Logi Einarsson ristarbrotnað. Sveinn Aron Sveinsson og Egill Magnússon hafa þá ekkert leikið með liðinu á tímabilinu vegna meiðsla.

„Það er náttúrlega leiðinlegt að missa menn í meiðsli. Þetta er búið að vera svolítið skrítið tímabil, að vera einhvern veginn alltaf með 4-6 leikmenn uppi í stúku. Það byrjaði bara í fyrsta leik í Rúmeníu í undankeppni Evrópudeildarinnar þegar Tandri sleit hásin,“ segir Hrannar í samtali við handbolta.is.

Stundum ætla meiðslin aldrei að hætta

„Svo er búið að vera rosalega mikið af meiðslum. Við fórum inn í tímabilið með hrikalega sterkan hóp og mikla breidd. Svo út af meiðslum hefur breiddin kannski minnkað en þetta er bara verkefni. Svona er þetta bara. Þetta er stundum svona, þar sem meiðslin ætla aldrei að hætta,“ segir hann og kveðst ekki hafa neinar skýringar á þessum tíðu meiðslum.

„Ég er allavega ekki með neinar skýringar á þessu. Það er búið að fara krossband, bein í rist, hásin, yfirspenna í hné og alls konar. Ég á engar skýringar á þessu. Þetta er kannski það sem allir eru að reyna að finna út, af hverju meiðast menn? Af hverju gerist þetta svona og hinsegin?“

Hrikalega erfitt tímabil

Hvernig hefur þessi mikli fjöldi meiðsla  farið í leikmannahópinn?

„Mér finnst strákarnir bara hafa haldið áfram. Auðvitað er tímabilið búið að vera hrikalega erfitt en mér finnst strákarnir hafa tekið þessu mjög vel. Þeir sem eru heilir og líka þeir sem hafa verið með hnjösk hafa alltaf verið klárir og farið í þetta á fullri ferð.

Það er enginn að tala um þessi meiðsli innan hópsins hjá okkur, það er ekkert þannig. Við höldum bara ótrauðir áfram,“ segir Hrannar og bætir við að illu heilli sé ekki von á endurkomu hjá neinum af þeim sex leikmönnum sem eru á meiðslalistanum á næstunni.


„Nei, ekkert konkret. Það er enginn af þessum sem eru búnir að vera meiddir byrjaðir að æfa aftur með okkur. Það er hörkubarátta fram undan, það er ekki spurning,“ segir Hrannar Guðmundsson í samtali við handbolta.is.

Stjarnan hefur tapað sjö leikjum í röð og er í tíunda sæti Olísdeildarinnar, einu stigi fyrir ofan Þór Akureyri sem er í umspilssæti, og með þremur stigum meira en botnlið ÍR. Neðsta liðið fellur beint niður í Grill 66 deildina og liðið í 11. sæti fer í umspil gegn liði úr Grill 66 deildinni.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -