Danski þjálfarinn Jan Pytlick, faðir eins besta handboltamanns heims, Simon, segir það erfitt að vera ekki stöðugt að gefa syni sínum ráð þó hann myndi glaður vilja gera það.
Simon er einn af lykilmönnum danska landsliðsins sem nú er ríkjandi Evrópu-, heims- og ólympíumeistari. Jan er þaulreyndur þjálfari og hefur unnið sem sérfræðingur við að greina leiki fyrir danska miðla.
„Ég horfi ekkert meira á hann en aðra leikmenn. Auðvitað fylgist ég með öllum og vitanlega gleðst ég þegar það gengur vel. Það er alveg ljóst. En að öðru leyti hef ég ekki mikið samband við hann á meðan stórmót stendur yfir því við höfum ákveðið að gera það þannig,“ segir Jan í samtali við danska miðilinn Hbold.
Hef sannarlega viljað segja eitthvað
Segir hann Simon fá alveg nægilega miklar leiðbeiningar og ráðgjöf frá öðrum að faðir hans þurfi ekki líka að skipta sér af.
„Já, þetta er með ráðum gert því veistu það, hann fær svo miklar upplýsingar frá öðrum að það er engin ástæða fyrir því að faðirinn láti honum líka upplýsingar í té,“ segir Jan en viðurkennir að vilja gjarna láta í sér heyra þegar hann kemur auga á einhver smáatriði sem er á færi reynslumikilla þjálfara eins og Jans.
„Já, ég hef svo sannarlega viljað segja eitthvað. Svo sannarlega, en ég held kjafti,“ segir Jan og hlær.


