Hulda Hrönn Bragadóttir skoraði stórbrotið mark fyrir Selfoss þegar liðið heimsótti Fram í Lambhagahöllina í Úlfarsárdal í 16. umferð Olísdeildar kvenna. Markið glæsilega var skoðað í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld.
„Þær verja hann ekki þarna, ég er eiginlega alveg viss. Þetta er svakalegt mark,“ sagði Vignir Stefánsson, einn sérfræðinga Handboltahallarinnar.
„Þetta er rosalegt,“ bætti Ásbjörn Friðriksson, annar sérfræðingur Handboltahallarinnar, við. „Þetta var eiginlega eini ljósi punkturinn hjá Selfoss-liðinu,“ sagði Hörður Magnússon þáttastjórnandi.
Fram vann að lokum stórsigur, 34:19, og situr í fjórða sæti á meðan Selfoss vermir botninn.
Markið stórkostlega og stutta umræðu um það má sjá í myndskeiðinu hér fyrir ofan.



