Ein færeysk kona sem leikur hér á landi er í 16 kvenna landsliðshópi Færeyinga sem valinn hefur verið fyrir tvo leiki við Portúgal í undankeppni Evrópumótsins 4. og 8. mars, heima og að heiman. Natasja Hammer leikmaður Stjörnunnar er í landsliðshópnum en hún var ekki í hópnum sem tók þátt í heimsmeistaramótinu undir lok síðasta árs.
Færeyska landsliðið er með íslenska landsliðinu í riðli undankeppninnar en ekki kemur að síðari viðureign liða þjóðanna fyrr en snemma í apríl þegar síðustu umferðir undankeppninnar fara fram.
Athygli vekur að 11 af 16 leikmönnum færeyska landsliðshópsins leika með félagsliðum í Danmörku. Ein leikur í Noregi og önnur á Íslandi eins og kemur fram að ofan. Þrjár konur leika í Færeyjum.
Markverðir:
Rakul Wardum, Ringkøbing Håndbold.
Annika Fríðheim Petersen, EH Aalborg.
Aðrir leikmenn:
Elsa Egholm, Ajax København.
Jana Mittún, Viborg HK.
Maria Pálsdóttir Nólsoy, HH Elite.
Marita Mortensen, HØJ.
Lív Bentsdóttir Zachariasen, Ajax København.
Súna Krossteig Hansen, Skanderborg Håndbold.
Natasja Hammer, Stjarnan.
Brynhild Pálsdóttir, BK Ydun.
Lív Sveinbjørnsdóttir Poulsen, VÍF.
Anna Elisabeth Halsdóttir Weyhe, H71.
Rannvá Olsen, Ejstrup/Hærvejen.
Pernille Brandenborg, Storhamar.
Vár Bentsdóttir Zachariasen, Ajax København.
Bjarta Osberg Johansen, Kyndil.
Leikir við Svartfellinga
Á sama tíma og færeyska landsliðið leikur við portúgalska landsliðið mætir íslenska landsliðið Svartfellingum í tvígang.
Svartfellingar hafa fjögur stig eftir tvær fyrstu umferðirnar í riðlinum sem fram fóru í október. Færeyingar og Portúgalar hafa tvö stig hvor og íslenska liðið rekur lestina á stiga eftir tap fyrir færeyska landsliðinu á heimavelli og portúgalska landsliðinu á útivelli.



