- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar Bragi fagnar deildarmeistaratitli í Svíþjóð

- Auglýsing -

Einar Bragi Aðalsteinsson varð í kvöld deildarmeistari í sænsku úrvalsdeildinni með samherjum sínum í IFK Kristianstad. Liðið vann IFK Skövde á útivelli, 34:30, í síðustu umferð deildarinnar. IFK Kristianstad fékk 42 stig í 26 leikjum eins og Malmö en stendur betur að vígi í innbyrðis viðureignum liðanna.

Einar Bragi og félagar mæta grannliðinu HF Karlskrona í átta liða úrslitum. Fyrsta viðureign liðanna fer fram í Kristianstad Arena á laugardaginn.

Einar Bragi skoraði tvö mörk í sigrinum mikilvæga í Skövde í kvöld og er skráður fyrir einni stoðsendingu.

Arnór með þrjú mörk

Arnór Viðarsson skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar þegar HF Karlskrona innsiglaði áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppninni með fjögurra marka sigri á Guif í Eskilstuna í kvöld, 31:27.

Þrjú mörk úr vítaköstum

Birgir Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk úr vítaköstum í öruggum sigri IK Sävehöf á grannliðinu Önnered, 32:24, í kvöld. Með sigrinum hreppti IK Sävehof sjötta sæti deildarinnar og mætir Hammarby í átta liða úrslitum. Stokkhólmsliðið á fyrsta leikinn á heimavelli.

Hammarby, með Gunnar Stein Jónsson í þjálfarateymi sínu, tapaði fyrir VästeråsIrsta HF á heimavelli, 34:33.

Töpuðu en voru úr leik

Arnar Birkir Hálfdánsson og félagar í Amo HK töpuðu á heimavelli fyrir Alingsås HK, 32:27. Arnar Birkir skoraði þrjú mörk og átti eina stoðsendingu. Leikmenn Amo HK eru komnir í frí. Þeir höfnuðu í 10. sæti, komast ekki úrslitakeppnina og komast hjá umspilskeppni um að forðast fall úr deildinni.


Lokastaðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -