- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar Bragi komst í útsláttarkeppnina en Stiven sat eftir

- Auglýsing -

Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad gerðu sér lítið fyrir og lögðu Benfica í Lissabon í kvöld í lokaumferð 3. riðils Evrópudeildar karla í handknattleik, 30:22. Sigurinn varð til þess að Kristianstad komst í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en Benfica situr eftir í neðsta sæti riðilsins og hefur þar með lokið keppni.


Einar Bragi skoraði fjögur mörk í sigurleiknum á heimavelli Benfica. IFK Kristianstad mætir RK Nexe í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar 31. mars og 7. apríl.

Eins mikið gleðiefni og sigurinn er fyrir leikinn IFK þá eru vonbrigðin mikil í herbúðum portúgalska liðsins. Stiven Tobar Valencia skoraði tvö af mörkum Benfica-liðsins.

Reynir Þór skoraði fjögur mörk

Reynir Þór Stefánsson skoraði fjögur mörk og Arnar Freyr Arnarsson tvö í níu marka tapi MT Melsungen, 34:25, fyrir Vardar Skopje í riðli 3 en IFK Kristianstad og Benfica eiga einnig sæti í riðlinum. Leikið var í Kassel í Þýskalandi.

Vardar hreppti efsta sæti riðilsins og situr yfir í fyrstu umferð riðlakeppninnar. MT Melsungen hafnaði í öðru sæti og mætir Fredericia HK í útsláttarkeppninni.


Leikir útsláttarkeppni Evrópudeildar karla:

Skanderborg – Flensburg.
Montpellier – Porto.
Fredericia – Melsungen.
Kristianstad – RK Nexe.

  • Leikirnir fara fram 31. mars og 7. apríl.
  • Sigurliðin komast í átta liða úrslit.
  • THW Kiel, Elverum, Vardar og Hannover-Burgdorf fara beint í átta liða úrslit.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -