- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar er orðinn liðsmaður Selfoss á nýjan leik

- Auglýsing -

Handknattleiksmaðurinn Einar Sverrisson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Selfoss. Rétt ár er liðið síðan Einar tók fram skóna eftir hlé frá handbolta og hóf að leika með FH. Var hann í herbúðum Hafnarfjarðarliðsins út leiktíðina. Einar kom ekkert við sögu hjá FH á fyrri hluta þeirrar leiktíðar sem nú stendur yfir.


Einar, sem er 33 ára gamall, leikur í stöðu vinstri skyttu auk þess að vera mjög öflugur varnarmaður. Hann eykur breiddina í leikmannahópi Selfoss sem er í harðri baráttu um að halda sæti sínu í Olísdeildinni.

Selfoss tekur á móti ÍBV í Suðurlandsslag í Vestmannaeyjum annað kvöld þegar þráðurinn verður tekinn upp í Olísdeildinni eftir langt hlé.

Félagaskiptavefur HSÍ.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -