Einar Rafn Eiðsson, spilandi aðstoðarþjálfari KA, mun yfirgefa félagið í sumar þegar hann flytur búferlum á höfuðborgarsvæðið ásamt fjölskyldu sinni. Einar Rafn greindi frá þessu í samtali við Handkastið, sem greinir frá því að bæði Haukar og FH séu áhugasöm um að semja við hann.
Einar Rafn er 36 ára gamall og leikur í stöðu hægri skyttu. Hann ólst upp hjá Haukum en hefur einnig leikið með Fram og FH auk eins tímabils í Noregi. Gekk Einar Rafn til liðs við KA frá FH sumarið 2021.
Hann á tvö börn með konu sinni Unni Ómarsdóttur, leikmanni KA/Þórs, og er hún nú ólétt að þriðja barni þeirra.
Unnur leikur ekki fleiri leiki með KA/Þór á leiktíðinni
Þrátt fyrir að vera bæði komin á síðari ár handknattleiksferilsins segist Einar Rafn gjarna vilja halda ferli sínum áfram fyrir sunnan fái hann tækifæri til þess auk þess sem Unnur útilokar ekki endurkomu á völlinn eftir að þriðja barnið kemur í heiminn.



