- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar Þorsteinn er veikur – Andri Már leikur sinn fyrsta EM-leik

- Auglýsing -

Einar Þorsteinn Ólafsson verður vegna veikinda utan leikmannahóps landsliðsins þegar íslenska landsliðið mætir Ítalíu í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik í Kristianstad Arena klukkan 17.

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari var að tilkynna hvaða 16 leikmenn hann teflir fram í viðureigninni við Ítalíu sem verður fyrsti mótsleikur þjóðanna í flokki A-landsliða.

Andri Már með í fyrsta sinn

Andri Már Rúnarsson leikur í dag sinn fyrsta landsleik á stórmóti og verður um leið 85. Íslendingurinn til þess að taka þátt í Evrópumóti í handknattleik karla.

Jafnar við Júlíus

Björgvin Páll Gústavsson markvörður leikur í kvöld sinn 288. landsleik og jafnar þar með við Júlíus Jónasson. Saman eru þeir í fimmta sæti yfir leikjahæstu landsliðsmenn Íslands.


Íslenska landsliðið sem mætir Ítölum er skipað eftirtöldum leikmönnum.

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (287/26).
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (75/2).
Aðrir leikmenn:
Andri Már Rúnarsson, HC Erlangen (8/8).
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (107/115).
Bjarki Már Elísson, One Veszprém (128/426).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (64/138).
Elvar Örn Jónsson, SC Magdeburg (93/214).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (75/171).
Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (47/64).
Janus Daði Smárason, Pick Szeged (100/177).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting Lissabon (32/106).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (58/178).
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (94/341).
Teitur Örn Einarsson, Vfl Gummersbach (48/46).
Viggó Kristjánsson, HC Erlangen (73/219).
Ýmir Örn Gíslason, Frisch auf! Göppingen (108/48).

EM 2026.

A-landslið karla.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -