Viðureign Vals og ÍBV í síðustu umferð Olísdeildar kvenna hefur verið seinkað um viku og fer fram laugardaginn 28. mars ef veður leyfir. Þetta kemur fram í leikjadagskrá á vef HSÍ. Aðrir leikir 21. og síðustu umferðar Olísdeildar kvenna sem fram eiga að fara á morgun eru á dagskrá.
Ekki kemur að sök þótt viðureign Vals og ÍBV sé frestað vegna þess að úrslit leiksins hafa ekki áhrif á stöðu annarra liða í deildinni. Valur er þegar orðinn deildarmeistari og er með fjögurra stiga forskot á ÍBV sem er í öðru sæti. ÍBV er sjö stigum fyrir ofan Hauka sem sitja í þriðja sæti.
Úrslitakeppni Olísdeildar kvenna hefst laugardaginn 28. mars. Valur og ÍBV sitja yfir í fyrstu umferð. Þess vegna er óhætt að fresta leiknum oftar ef þörf verður á en sennilega er rétt að vera búinn að koma leiknum í kring áður en landsliðið kemur saman til undirbúnings fyrir tvo síðustu leikina í undankeppni EM upp úr páskahelginni.
Leikir Olísdeildar kvenna á morgun, laugardag:
Fram - KA/Þór.
ÍR - Selfoss.
Haukar - Stjarnan.
Flautað verður til leiks klukkan 14.



