Piltarnir í 17 ára landsliðinu í handknattleik unnu færeyska jafnaldra sína í fyrstu umferð á Nordic Open-mótinu í Høllinni í Runavík í kvöld, 29:28. Færeyingar voru marki yfir í hálfleik, 16:15. Næsti leikur á mótinu verður á morgun í þjóðarhöllinni í Þórshöfn, Við Tjarnir, kl. 15. Þjóðverjar unnu Svisslendinga í dag, 28:27.
Alex Unnar Hallgrímsson skoraði sigurmark íslenska liðsins í leiknum. Þess má til fróðleiks geta að Alex Unnar er bróðir Viktors Gísla landsliðsmarkvarðar.
Þriðji leikur íslensku piltanna á mótinu verður gegn þýska landsliðinu á sunnudagsmorgun. Þátttakan í mótinu er liður í undirbúningi fyrir Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í í Norður Makedóníu 20.- 26. júlí.
Mörk Íslands: Gunnar Róbertsson 8, Alex Unnar Hallgrímsson 3, Patrekur Smári Arnarsson 3, Ómar Darri Sigurgeirsson 4, Örn Kolur Kjartansson 3, Anton Frans Sigurðsson 2, Freyr Aronsson 2, Matthías Dagur Þorsteinsson 2, Bjarki Snorrason 1, Logi Finnsson 1, Kári Steinn Guðmundsson 1.
Varin skot: Sigurmundur Gísli Unnarsson 12, Jóhannes Andri Hannesson 3.
Nordic Open: Føroyar við flottum avriki móti Íslandi
17 ára landslið pilta tekur þátt í Nordic Cup í Færeyjum í vikulokin
Streymt er frá leikjunum gegn vægu gjaldi: https://live.hsf.fo/