„Maður vill alltaf meira. Mér finnst sem við gætum verið með tveimur eða jafnvel fjórum stigum fleiri í Olísdeildinni en við höfum þegar. Á hitt ber þó að líta að þegar lið eru skipuð mörgum ungum leikmönnum þá eru oft sveiflur í frammistöðunni.“ sagði Halldór Stefán Haraldsson þjálfari karlaliðs KA í samtali við handbolta.is á föstudagskvöldið eftir bikarleik Fjölnis og KA í Fjölnishöllinni.
Halldór Stefán var inntur eftir stöðu KA-liðsins í Olísdeildinni en það er í 7. sæti með átta stig þegar níu umferðum er lokið.
„Það er okkar að gera betur í þeim leikjum sem eru eftir í fyrri hluta deildarkeppninnar og áður en kemur að EM hléinu í desember og herða síðan róðurinn í síðari hlutanum,“ sagði Halldór Stefán sem tók við þjálfun KA í sumar eftir að hafa flutt heim frá Noregi að loknum nokkrum góðum árum þar við þjálfun.
Það er bjargföst skoðun okkar að það
Halldór Stefán Haraldsson þjálfari KA.
er engin úrslitakeppni í Olísdeildinni án KA.
Áfram veginn
„Við erum komnir í átta liða úrslit í Poweradebikarnum og eins og staðan er í Olísdeildinni erum við í sæti til þess að komast í úrslitakeppni. Það er hinsvegar mikið eftir. Við verðum bara að halda áfram að vinna, utan vallar sem innan. Við viljum meira en staðan er í dag.“
Engin úrslitakeppni án KA
Halldór Stefán sagðist finna ekki fyrir pressu af hálfu stjórnenda KA eins og staða liðsins er í dag.
„Fyrst og fremst geri ég kröfur til mín sjálfs. Ég vil fara með KA-liðið í úrslitakeppni og komast í Höllina í undanúrslit í bikarnum. Það er bjargföst skoðun okkar að það er engin úrslitakeppni í Olísdeildinni án KA. Það er alveg á hreinu,“ sagði Halldór Stefán Haraldsson þjálfari karlaliðs KA ákveðinn í samtali við handbolta.is.
Næsti leikur KA í Olísdeild karla verður á móti Val í Origohöllinni á þriðjudagskvöld klukkan 18 þegar 10. umferð hefst með þremur viðureignum.
Auk leiksins í Origohöllinni á þriðjudaginn fær Víkingur liðsmenn Aftureldingar í heimsókn í Safamýri og ÍBV sækir Fram heim í Úlfarsárdal. Sömu lið mættust í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins í gær í Vestmannaeyjum. ÍBV vann, 32:28, í hörkuleik.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.