- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Eitt sterkasta lið sem komið hefur til landsins

- Auglýsing -

Anton Rúnarsson þjálfari Vals segir markmiðið að veita Blomberg-Lippe meiri mótstöðu frá upphafi til enda þegar liðin mætast í síðari viðureigninni í annarri umferð forkeppni Evrópudeildar kvenna í handknattleik í N1-höllinni á morgun, sunnudag, klukkan 17.

Með þýska liðinu leika Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir. Andrea er meidd en Díana og Elín þekkja vel til á Hlíðarenda. Einnig eru fimm landsliðskonur í leikmannahópi Vals.

Miðasala á leikinn á sunnudaginn.

Þýskar landsliðskonur

Alexia Hauf og Nieke Kühne eru í þýska landsliðinu sem mætir íslenska landsliðinu í upphafsleik HM í Stuttgart 26. nóvember. Kühne er aðeins 21 árs gömul og þykir eitt mesta efni í evrópskum handbolta um þessar mundir.

Valur tapaði með 13 marka mun ytra sl. laugardag, 37:24, og möguleikarnir á sæti í riðlakeppninni eru ekki miklir gegn efsta liði þýsku 1. deildarinnar.

„Fyrst og fremst ætlum við að sýna betri frammistöðu en í síðasta leik,“ sagði Anton þegar handbolti.is ræddi við hann.

Anton segir að þótt munurinn sé mikill í mörkum talið eigi ekkert að koma í veg fyrir að Valsliðið leiki heilsteyptari viðureign með góðum stuðningi. Það sé sannarlega ekki á hverjum degi sem jafn sterkt handboltalið og HSG Blomberg-Lippe leiki hér á landi.

Bætum okkar leik og lærum

„Við höfum farið yfir okkar leik, jafnt í vörn sem sókn. Hins vegar má ekki gleyma því að HSG Blomberg-Lippe er hrikalega sterkt lið sem lék mjög vel á sínum heimavelli,“ segir Anton sem

„Þetta er eitt sterkasta lið sem hingað hefur komið um árabil. Innan raða liðsins eru landsliðskonur, þýskar og íslenskar. Við viljum fá fólk á völlinn. Fyrir íslenskar konur skiptir svona leikur mjög miklu máli. Við ætlum okkur að veita þeim góða mótspyrnu og fá helling út í leiknum,“ segir Anton Rúnarsson þjálfari kvennaliðs Vals.

Lengra viðtal við Anton er í myndskeiði ofar í þessari frétt.

Tilbúnar í vinnu til að mæta sterkum liðum

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -