- Auglýsing -
Leik Fram og Selfoss í Olísdeild kvenna sem fram átti að fara í kvöld í Lambhagahöllinni hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Fram.
Ekkert hefur verið sent út frá mótanefnd HSÍ síðan tilkynning barst kl.18.23 í kvöld um frestun leiksins til 20.30 vegna ófærðar á vegum milli Selfoss og Reykjavíkur.
- Auglýsing -