- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ekki hægt að hafna því að leika með Barcelona

- Auglýsing -

„Ég og fjölskylda mín erum afar spennt fyrir að flytja til Barcelona og verða hluti af þessu stóra félagi,“ segir Janus Daði Smárason landsliðsmaður í handknattleik þegar handbolti.is heyrði í honum eftir að upplýst var í gær að Janus Daði gangi til liðs við Katalóníustórveldið í sumar. Janus Daði, sem er 31 árs síðan á nýársdag, skrifaði undir þriggja ára samning við Barcelona og verður þar með fimmti íslenski handknattleiksmaðurinn til þess að leika með liði félagsins.

Nálgast hátind ferilsins

„Ég er á góðum stað líkamlega og andlega, er sennilega nærri hátindi ferilsins og lítið til þessara þátta. Þar af leiðandi á ég nokkur góð ár inni í handboltanum þótt ég sé kominn yfir þrítugt. Ég er staðráðinn í að mæta til leiks og skipta máli hjá liðinu,“ segir Janus Daði sem er langt kominn með annað keppnisár sitt hjá ungverska liðinu Pick Szeged.

Janus Daði er fæddur 1. janúar 1995. Hann byrjaði að æfa ungur handbolta á Selfossi eins og margir í hans frændgarði. Á táningsaldri var Janus Daði í tvö ár hjá Aarhus Håndbold en kom heim aftur 2014 og lék með Haukum í tvö og hálft ár uns hann samdi við Aalborg Håndbold og var í þrjú ár, 2017 til 2020. Janus Daði lék með Frisch Auf Göppingen 2020 til 2022, Kolstad 2022 til 2023, SC Magdeburg 2023 til 2024 og frá 2024 með OTP Bank-Pick Szeged í Ungverjalandi. A-landsleikir Janusar Daða eru 109. Hans fyrsta stórmót með landsliðinu var HM 2017 í Frakklandi. 

Óheppnir í vetur

„Við erum með mjög gott lið hjá Pick Szeged en því miður höfum við verið óheppnir með margs konar meiðsli á leikmannahópnum í vetur. Við sýndum styrk okkar í fyrra þegar við vorum lánsamari hvað meiðsli varðar.

Okkur líður mjög vel í Szeged og út frá því var ekkert auðvelt að ákveða að fara í sumar. Dóttir okkar Emblu fæddist hér og við höfum komið okkur vel fyrir.

Hins vegar tel ég víst að þegar fram í sækir þá hefði ég alltaf séð eftir að hafa ekki slegið til og farið til Barcelona þegar tækifærið gafst,“ segir Janus Daði enn fremur.

Janus Daði hefur samið við Barcelona til þriggja ára

Janus Daði verður fimmti íslenski handknattleiksmaðurinn til þess að leika með Barcelona. Viggó Sigurðsson var sá fyrsti. Hann lék með Barcelona eitt tímabil, 1979 til 1980, og varð spænskur meistari. 
Á eftir Viggó komu Guðjón Valur Sigurðsson frá 2014 til 2016 og Aron Pálmarsson 2017 til 2021. Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður gekk í raðir Barcelona á síðasta ári og samdi til tveggja ára. Þar af leiðandi verða Íslendingarnir tveir í herbúðum Katalóníuliðsins leiktíðina 2026/2027.

Eitt af fjórum stærstu í Evrópu

Janus Daði segir engan vafa leika á að þrátt fyrir allt gott sem að segja um Pick Szeged þá taki hann skref upp á við með Barcelona sem hafi verið risi í evrópskum handbolta í karlaflokki um áratugaskeið. „Hjá Barcelona fer ég inn í eitt af fjórum bestu liðum Evrópu. Þar með reynir á mig að aðlagast og leggja mitt af mörgum til þess að lið félagsins geti haldið áfram á þeirri braut velgengni sem það hefur verið á,“ segir Janus Daði Smárason handknattleiksmaður.

- Barcelona er sigursælasta handboltalið í karlaflokki á síðari árum. Félagið hefur unnið spænska meistaratitilinn í 32 skipti, þar af 15 síðustu ár. 
- Spænsku bikarkeppnina hefur liðið unnið 29 sinnum, Meistaradeild Evrópu 12 sinnum, heimsmeistaramót félagsliða í sex skipti og nærri ótal sigurlaun fyrir ýmis önnur mót utan sem innan Spánar.
- Eftir að keppnisfyrirkomulagi Meistaradeildar Evrópu var breytt frá og með leiktíðinni 2009/2010 hefur Barcelona komist 13 sinnum af 16 mögulegum skiptum í undanúrslit, þ.e. tekið þátt í úrslitahelginni í Köln. Í átta skipti hefur lið félagsins leikið til úrslita og unnið fimm sinnum, síðast vorið 2024.

Janus Daði: „Líklega stærsta félag heims“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -