- Auglýsing -
Íslendingalið Ryger frá Stafangri tapaði fyrir Lilleström, 33:27, í lokaumferð norsku B-deildarinnar í dag og hafnar þar með í 12. sæti af 14. Það þýðir að Ryger á enn von um að halda sæti sínu í deildinni.
Ryger fer nú í umspil ásamt Lilleström og tveimur liðum úr C-deildinni um eitt sæti í B-deildinni.
Árni Bergur Sigurbergsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum fyrir Ryger í leiknum í dag. Elías Már Halldórsson er þjálfari liðsins en lætur af störfum að loknu tímabilinu.
Elías Már tekur við varaliði kvennaliðs Storhamar HE í sumar. Varalið Storhamars leikur í norsku B-deildinni.
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -



