- Auglýsing -
Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar hennar í IK Sävehof unnu enn einn sigurinn í sænsku úrvalsdeildinni í dag og tryggðu sér um leið deildarmeistaratitilinn. Að þessu sinni kom IF Hallby HK í heimsókn og lá í valnum, en lokatölur urðu 36:25.
Sävehof trónir því sem fyrr á toppi deildarinnar, er nú með 34 stig og sex stiga forskot á Önnereds HK í öðru sæti. Auk þess á Sävehof leik til góða og getur Önnereds því ekki náð toppliðinu að stigum.
Elín Klara hefur leikið einkar vel á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku með Sävehof og skoraði fjögur mörk í dag.
Landsliðskonan er þriðji markahæsti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar með 124 mörk í 19 leikjum.
- Auglýsing -



