Deildarmeistarar IK Sävehof unnu Skuru IK, 26:23, á heimavelli í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik kvenna í kvöld. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar fyrir Sävehof sem var með fjögurra marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 15:11.
Næsti leikur liðanna fer fram í Skuru á fimmtudaginn. Vinna þarf þrjár viðureignir í átta liða úrslitum. Þriðji leikurinn er ráðgerður í Partilla fimmtudaginn 16. apríl.
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf einnig tvær stoðsendingar í gær þegar Skara HF, meistarar síðasta árs, unnu VästeråsIrsta HF, 32:22, heima í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum.
Næst eigast liðin við í Västerås á laugardaginn.



