Elín Klara Þorkelsdóttir landsliðskona og leikmaður Hauka kveður Olísdeild kvenna eftir að hafa verið valin besti leikmaður deildarinnar þriðja árið í röð í uppskeruhófi HSÍ sem haldið var síðdegis í dag. Elín Klara gengur á næstunni til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið IK Sävehof.
Elín Rósa Magnúsdóttir úr Val, sem einnig færir sig um set í sumar, var valin besti sóknarmaður Olísdeildar annað árið í röð. Samherji Elínar Rósu, Hafdís Renötudóttir, skaraði framúr öðrum markvörðum Olísdeildarinnar annað árið í röð og í þriðja sinn á ferlinum.
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín er efnilegasti leikmaður Olísdeildar kvenna í annað sinn á tveimur árum.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir hlaut Sigríðarbikarinn sem veittur er mikilvægast leikmanni deildarinnar. Bikarinn er kenndur við Sigríði Sigurðardóttur fyrirliða Vals, landsliðsins og fyrstu konuna sem kjörin var Íþróttmaður ársins af Samtöku íþróttafréttamanna.
Háttvísiverðlun Handknattleiksdómararsambandsins komu að þessu sinni í hlut Hildigunnar Einarsdóttur leikmanns Íslandsmeistara Vals.
Verðlaunahafar í Olísdeild kvenna:
Þjálfari ársins: Ágúst Þór Jóhannsson, Val.
Mikilvægasti leikmaður (Sigríðar-bikarinn): Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val.
Besti leikmaður: Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum.
Besti sóknarmaður: Elín Rósa Magnúsdóttir, Val.
Besti varnarmaður: Steinunn Björnsdóttir, Fram.
Besti markmaðurinn: Hafdís Renötudóttir, Val.
Efnilegasti: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram.
Besta dómaraparið: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson.
Háttvísiverðlaun HDSÍ: Hildigunnur Einarsdóttir, Val.