- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ellefti tapleikur Stjörnunnar í röð – fer í umspil

- Auglýsing -

Stjarnan tapaði ellefta leik sínum í Olísdeild karla í röð í þegar liðið beið ósigur gegn Fram, 24:26, í Heklu höllinni í Garðabæ í kvöld. Stjarnan hafnar þar með í ellefta sæti og fer í fjögurra liða umspil með þremur liðum úr Grill 66 deildinni um að halda sæti sínu.

Stjarnan fékk aðeins tíu stig úr 22 leikjum. Fram hafnar í sjöunda sæti með 26 stig og var fyrir töluverðu síðan búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn.

Stjarnan var með tögl og hagldir í fyrri hálfleik og leiddi með fjórum mörkum 14:10, að honum loknum. Framan af síðari hálfleik var Stjarnan áfram með undirtökin en þegar hann var hálfnaður jafnaði Fram metin í 18:18 og komst svo yfir, 19:18.

Eftir mikla baráttu það sem eftir lifði leiks var það Fram sem reyndist hlutskarpara og vann að endingu tveggja marka sigur.

Stjarnan – Fram 24:26 (14:10).

Mörk Stjörnunnar: Hans Jörgen Ólafsson 10, Benedikt Marinó Herdísarson 5/3, Ísak Logi Einarsson 3, Daníel Karl Gunnarsson 2, Starri Friðriksson 1, Tandri Már Konráðsson 1/1, Sveinn Andri Sveinsson 1, Jóel Bernburg 1.
Varin skot: Adam Thorstensen 13/1, Sigurður Dan Óskarsson 0.

Mörk Fram: Rúnar Kárason 5, Arnþór Sævarsson 4, Kjartan Þór Júlíusson 4, Max Emil Stenlund 4, Dagur Fannar Möller 2, Arnar Snær Magnússon 2, Ívar Logi Styrmisson 2/2, Kristófer Tómas Gíslason 1, Dánjal Ragnarsson 1, Eiður Rafn Valsson 1.
Varin skot: Breki Hrafn Árnason 4/1, Arnór Máni Daðason 1.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -