- Auglýsing -
Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 20. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa staðið sig afar vel í sigri VfL Gummersbach á SG Flensburg-Handewitt á þriðjudagskvöld.
Elliði Snær skoraði átta mörk úr 11 skotum er Gummersbach vann 33:26. Er þetta í fyrsta sinn á tímabilinu sem Eyjamaðurinn er valinn í úrvalslið umferðarinnar, sem deildin sjálf stendur fyrir.
Var hann markahæstur í leiknum og fékk 90 stig samkvæmt HPI-stuðlinum (Handball Performance Index) fyrir frammistöðu sína að mati þýsku deildarinnar.
HPI-stuðullinn tekur saman ýmsa tölfræðiþætti. Þeir sem skora hæst samkvæmt stuðlinum í hverri stöðu fyrir sig í hverri umferð komast í úrvalsliðið.
- Auglýsing -



