Landslið Íslands og Færeyja skildu jöfn, 35:35, í annarri umferð F-riðils heimsmeistaramóts 21 árs landsliða í Katowice í dag. Elmar Erlingsson var stórkostlegur og skoraði 17 mörk í 21 skoti auk sjö stoðsendinga.
Óli Mittún jafnaði metin úr vítakasti þegar leiktíminn var runninn út. Áður hafði síðasta sókn íslenska landsliðsins runnið út í sandinn þegar átta sekúndur voru til leiksloka. Færeyingar brunuðu fram völlinn og Össur Haraldsson varð á vegi Óla Mittún rétt innan við miðju. Össur hafði komið sér í stöðu og hefði átt að fá ruðning. Dómarar frá Úrúgvæ voru á öðru máli.
Össuri var vikið af leikvelli og Færeyingar fengu vítakastið sem tryggði þeim annað stigið og skrefi nær 16-liða úrslitum. Vonir íslenska um sæti 16-liða úrslitum eru hinsvegar veikar. Staðan í riðlinum skýrist síðar í dag þegar Rúmenar og Norður Makedóníumenn hafa mæst.

Næsti leikur íslenska liðsins og sá síðasti í riðlakeppninni verður gegn Norður Makedóníu á laugardaginn og hefst klukkan 16.
Íslenska liðið var undir í leiknum frá upphafi og allt þangað til Össur Haraldsson skoraði 35. markið, 35:34, þegar 80 sekúndur voru til leiksloka. Breki Hrafn Árnason varði síðan úr opnu færi þegar rétt innan við mínúta var til leiksloka. Íslenska liðið hóf sókn en tók leikhlé þegar 34 sekúndur voru eftir. Færeyingar léku maður á mann eftir leikhléið og íslensku piltunum tókst ekki að koma sér í marktækifæri.

Færeyingar voru mest fimm mörkum yfir og satt að segja var útlitið ekki bjart lengi vel. Þeir léku með sjö menn í sókn frá byrjun til enda þar sem Óli Mittun var allt í öllu lengi vel með stöðugum árásum á vörnina.
Með gríðarlegri baráttu í vörninni í síðari hálfleik og stórleik Elmars í sókninni tókst að vinna upp forskot Færeyinga og vera hársbreidd frá að vinna.
Mörk Íslands: Elmar Erlingsson 17/7, Skarphéðinn Ívar Einarsson 6, Össur Haraldsson 6, Birkir Snær Steinsson 2, Hinrik Hugi Heiðarsson 2, Haukur Ingi Hauksson 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.
Varin skot: Breki Hrafn Árnason 6/1, 27% – Ísak Steinsson 4/1, 17%.
Mörk Færeyja: Óli Mittún 11/4, Isak Vedelsbøl 10/3, Rókur Ziskason 4, Høgni Heinason 4, Høgni Hojsted 2, Búi Poulsen 1, Óla Jákup Gaard Olsen 1, Rókur Ziskason 1, Rói Hjaltason Seyer 1.
Varin skot: Tórstein Sivertsen 4, 29% – Aleksandar Lacok 4, 14%.
Ítarlegri tölfræði.
HM21-2025: riðlakeppni, úrslit og staðan
- Næsta viðureign íslenska landsliðsins verður gegn Norður Makedóníu á laugardaginn og hefst leikurinn klukkan 12.
Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.