-Auglýsing-

Elmar fór meiddur af velli – segulómskoðun á mánudag

- Auglýsing -

Elmar Erlingsson handknattleiksmaður hjá Nordhorn-Lingen fékk þungt högg á vinstri síðuna undir lok fyrri hálfleiks viðureignar liðsins við Vfl Potsdam í næstefstu deild þýska handknattleiksins í gærkvöld. Kom hann ekkert meira við sögu í leiknum. Við skoðun hjá lækni í morgun var útlokið að Elmar hefði brotnað.


Á mánudaginn fer hann í segulómskoðun þar sem meiðslin skýrast betur og þá hversu lengi hann verður frá keppni.

Elmar hafði skorað eitt mark í leiknum í gærkvöld og gefið fjórar sendingar þegar hann meiddist og varð að hætta leik.

Potsdam vann viðureignina með 11 marka mun, 34:23. Nordhorn-Lingen er í 7. sæti 2. deildar þegar liðið á 10 leiki eftir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -