Elmar Erlingsson og liðsfélagar hans í HSG Nordhorn-Lingen unnu nauman heimasigur á HC Elbflorenz 2006, 32:31, í þýsku B-deildinni í kvöld. Nordhorn eygir ennþá smávægilega von um að komast upp í efstu deild.
Nordhorn er í sjötta sæti með 32 stig, sex stigum á eftir HBW Balingen-Weilstetten sem á auk þess leik til góða. Balingen er í öðru sæti og á miklu skriði. Því þyrfti flest að ganga upp það sem eftir er af tímabilinu ætli Nordhorn sér að komast upp um deild.
Elmar komst ekki á blað hjá Nordhorn að þessu sinni en hann átti ekki marktilraun í leiknum. Hann meiddist í leik fyrir tveimur vikum og hefur ekki jafnað sig.
Hinn hálf íslenski Viktor Petersen Norberg átti prýðis leik fyrir Elbflorenz er hann gaf fimm stoðsendingar. Viktor skoraði hins vegar ekki úr tveimur tilraunum.
Tapið kom sér illa fyrir Elbflorenz þar sem liðið er í þriðja sæti með 36 stig og hefði með sigri getað andað í hálsmálið á Balingen.


