- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elvar fór afar illa með Arnór og lærisveina

- Auglýsing -

Elvar Ásgeirsson átti frábæran leik fyrir Ribe-Esbjerg þegar liðið heimsótti lærisveina Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni og hafði öruggan sigur, 39:31, í kvöld.

Elvar skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og var markahæstur allra í leiknum. Auk þess gaf hann fimm stoðsendingar og reyndist því Holstebro ansi illviðráðanlegur.


Jóhannes Berg Andrason er leikmaður Holstebro og skoraði eitt  mark úr þremur skotum.

Ribe-Esbjerg fór með sigrinum úr 13. og næstneðsta sæti upp í 11. sæti þar sem liðið er með 16 stig. Holstebro er áfram í sjöunda sæti með 22 stig.

Komnir í umspilsæti

TMS Ringsted með Guðmund Braga Ástþórsson og Ísak Gústafsson innanborðs lyfti sér upp í umspilssæti, áttunda sæti, með sigri á Nordsjælland, 33:27, á útivelli.
Ísak skoraði tvö mörk fyrir Ringsted og gaf eina stoðsendingu. Guðmundur Bragi skoraði eitt mark.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -